Fundur nr. 5 á starfsárinu, fundur nr. 3427 frá stofnun

fimmtudagur, 6. september 2018 18:30-20:00, Park Inn Hotel Hafnargata 57 230 Reykjanesbær
Fundur var settur í Rótarýklúbbi Keflavíkur. Þetta er 5. fundur starfsársins, fundur nr. 3427 frá stofnun.  Forseti bað félaga og gesti að rísa úr sætum og skála fyrir ættjörðinni í vatni.

Fjórprófið.

Gestir voru kynntir á viðeigandi hátt: Hrafnhildur Peiser, Grabilo Beck Cordeira, Íris Dröfn Björnsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Guðrún Sigríður Jóhannsdóttir, Kristjana E. Guðlaugsdóttir. 

Heimsóknir í aðra Rótarýklúbba:
Ómar Steindórsson RK. Garðar, 3. september.
Ólafur Helgi Kjartansson RK. Grafarvogs, 5. september.
Jón B. Guðnason, Verðlauna- og styrktarsjóður Rótarý á Íslandi, 7. september.

Boðuð forföll:
Ólafur Helgi Kjartansson.
Guðmundur Björnsson, vf.
Grétar Grétarsson.

Þriggja mínutna erindi var í umsjón Einars Magnússonar.  Einar ræddi um heilbrigðismál og sagði er þau bæru á góma, væri aldrei rætt um tannlækningar.  Hann sagði að það væru 40 ár síðan tannlæknar tóku upp innköllunarkerfi sjúklinga sem núna kæmu einu sinni til tvisvar á ári til eftirlits.

Rótarýmálefni:
Kristófer Þorgrímsson lagði fram reikninga Rótarýklúbbs Keflavíkur og fór yfir helstu niðurstöður.  Reikningarnir voru samþykktir samhljóða.  
Georg V. Hannah sagði frá Golfmóti Rótarý á Íslandi sem fram fór í brjáluðu veðri á Urriðavelli. Þátttakendur voru samtals 46. Frá Rótarýklúbbi Keflavíkur komu Grétar, Einar, Hannes, Jón og Georg.
Forseti las úr bréfi frá Umdæmisskrifstofu og einnig úr mánaðarbréfi Umdæmisstjóra, Garðars Eiríkssonar sem hún hafði sent á alla félaga. Hún las einnig upp úr bréfi frá Alþjóðaforseta Rótarý um lömunarveikina sem nú herjar á tvö lönd þ.e. Pakistan og Afganistan.  14 börn hafa smitast af Polio vírusnum á s.l. ári.  Alþjóðaforseti leggur til að 24. október verði gerður að alþjóðlegum degi til þess að ræða lömunarveikina. 
Agnar Guðmundsson sagði frá haustferð klúbbsins sem verður farin 24. nóvember til Stykkishólms.  Agnar mun framkvæma skoðunarkönnun á netinu meðal félaga.
Valgerður Guðmundsdóttir flutti kveðju frá Ásbirni Jónssyni, fyrrverandi félaga okkar sem nú er að berjast við alvarleg veikindi.  
Íris Dröfn Björnsdóttir ræddi skiptinema klúbbsins, dóttur hennar sem nú er staðsett í Bandaríkjunum.  Hún er mjög ánægð með dvölina þar.  Íris upplýsti okkur einnig um skiptinemann Gabriella sem dvelur hjá Írisi og fjölskyldu.  Gabriella sem er frá Brasilíu sagði síðan nokkur orð. 

Fundarefnið var í boði Þjóðmálanefndar, formaður Ómar Steindórsson. Fyrirlesari kvöldsins var Hrafnhildur Peiser, heilsuhagfræðingur. Erindið var: "Og við skráum og skráum, hvað svo?". 
Erindið snérist um vannýtt tækifæri hér á landi í þeirri auðlind sem heilbrigðisstarfsmenn skapa á hverjum degi með skráningu í alla mögulega heilbrigðistengda gagnagrunna.  Skýrt var frá notkunarmöguleikum allra þessara upplýsinga til að stýra heilbrigðisþjónustu á skilvirkan hátt, allt frá heilbrigðiskerfinu öllu niður í stakar meðferðir einstaklinga með notkun viðskiptagreindartóla. 

Fundarefni næstu funda verður í umsjón Þjóðmálanefndar, formaður Ómar Steindórsson.
13. september, Veigar Margeirsson, tónskáld. Í boði Jóns Axelssonar/Stefáns Sigurðssonar.
20. september, Ólafur Helgi Kjartansson, Rótarýsjóðurinn.  Í boði Ómars Steindórssonar.
27. september, vantar.

Ritari gerði grein fyrir afmælum til næsta fundar og mætingu:
Afmæli félaga: Engin.
Starfsaldursafmæli: Engin.
Makavaktin: Vilborg Georgsdóttir, 11. september, maki Guðmundur Björnsson vf..

Mæting á síðasta fundi var: xx%
Mæting í ágúst var: xx%.
Mætin á fundinum var: 71,4%.

Fundi slitið. 

Forseti:  Þórunn Benediktsdóttir.
Ritari: Ómar Steindórsson.