Dagskrá:
-
Tölvukennslu hjá Agnari ma um aðgang að nýja tölvuforritinu hjá hreyfinginni á Íslandi. Félagar þurfa helst að koma með fartölvur en ég held að Agnar ætli líka að koma með nokkrar fartölvur.
-
Bólusetning við lömunarveiki. Ég hef aðeins fengið 5 nöfn sem vilja fá bólusetningu. Endilega sendið mér póst ef þið viljð bólsetningu með kennitölum ykkar fyrir fundinn, helst fyrir hádegi á morgun.
-
Fánamál.
-
Grísinn okkar.
Fundargerð:
29. nóvember 2018
Fundur er settur í Rótarýklúbbi Keflavíkur. Þetta er 17. fundur starfsársins, nr. 3439 frá stofnun.
Forseti biður félaga og gesti að rísa úr sæti og skála fyrir ættjörðinni í vatni.
Fjórprófið
Er það satt og rétt?
Er það drengilegt?
Eykur það velvild og vinarhug?
Er það öllum til góðs?
Boðuð forföll:
-Ólafur Helgi Kjartansson
Mætingar á öðrum fundum:
-Ólafur Helgi Kjartansson
-Georg V. Hannah
Þriggja mínútna erindi:
Jón Björn Sigtryggsson hélt þriggja mínútna erindi þar sem hann fjallaði um samgöngur á Vestfjörðum. Hann fór almennt fyrir samgöngumálin á Vestfjörðum og öll þau vandamál og verkefni sem þar eru óleyst.
Rótarýmálefni:
Á dagskrá var klúbbþing undir stjórn klúbbþjónustunefndar. Erlingur J. Leifsson stýrði dagskránni.
Konráð fór yfir dagskrá jólafundarins og inntöku nýrra félaga á fundinum.
Gjaldkerfi fór yfir breytingar á innheimtukerfinu og möguleg vandamál félaga varðandi innheimtu félagsgjalda í nóvember. Þeir félagar sem málið varðar fá senda greiðsluseðla.
Þórunn stóð fyrir bólusetningu félaga eftir fundinn.
Fundarefni kvöldsins
Erlingur J. Leifsson fór yfir dagskrá klúbbþingsins, þróun starfsins síðast liðin ár. Agnar Guðmundsson fór yfir nýja félagakerfið og heimasíðu Rótarý á Íslandi, www.rotary.is . Hann hóf umræðuna á því að fara yfir eldra félagakerfið og síðan nýja félagakerfið sem er nýtt kerfi upprunnið frá Sænsku Rótarýhreyfingunni.
Ingibjörn stallari ræddi um að fá fána eða stand með Rótarýmerkinu til að hafa fyrir framan fundarsalinn og betri geymslu fyrir fundarbúnaðinn, borðfána og fl..
Guðmundur Björnsson (VF) tók undir vandamálið með geymslu á búnaðinum.
Erlingur fór yfir „Grísinn“ og þá hvort breyta eigi fyrirkomulaginu? Hver tekur ákvörðun um framtíð hans en flest okkar eru bara með greiðslukort á sér. Gjaldkeri bent á að samtals hefðu safnast kr. 13.950 á síðasta starfsári. Umræður urðu um „Grísinn“ og þá hvort hætta ætti með hann. Ómar benti á ákveðið hefði verið að nota sjóðinn til að kaupa nýjan íslenskan fána fyrir kirkjuna. Rætt var um valgreiðslumöguleika.
Forseti lagði fram tillögu um að félagar legðu fram kr. 500 mánaðarlega í Grísinn.
Ritari gerir grein fyrir afmælum til 5. desember 2018:
Afmæli félaga:
-Ása Einarsdóttir 29.11.1953
Starfsaldursafmæli: Engin.
Makavaktin: Engin.
Fundarefni næsta fundar:
Kosið verður til stjórnar 2020/2021 og Sossa verður með starfsgreinaerindi.
Mæting á síðasta fundi var:
Mæting síðasta mánaðar var:
Mæting í kvöld: 83%
Forseti: Þórunn Benediktsdóttirr
Ritari: Jón B. Guðnason
Fleira ekki gert og fundi slitið.