Rótarýdagurinn 23. febrúar 2019.
Fundur haldinn 15. janúar 2019, kl. 17:00.
Mættir: Ómar Steindórsson, Ólafur Helgi og Guðmundur Björnsson.
Kynna þarf klúbbinn sérstaklega. Grein um klúbbinn skrifar Guðmundur. Ómar hefur upplýsingar um það hvernig Rótarý kom til Íslands og skrifar um það og Rótarýhreyfinguna. Ólafur Helgi skrifar um Rótarýsjóðinn
Nokkur atriði sem huga þarf að:
-
Dagskrá, fyrirlestrar, kynning á Rótarýhreyfingunni, Rkl. Keflavíkur og Rótarýsjóðnum. Æskilegt að fá gest sem myndi ræða um mikilvægi þjónustuklúbba. Jóhann Friðrik Georgsson, formaður bæjarráðs. Guðmundur ræðir við hann.
-
Aðdragandi 1-3 vikur, hafa samband við Pál Ketilsson. Víkurfréttir og sjónvarpið. Ólafur Helgi ræðir við Pál.
-
Greinaskrif Víkurfréttir – sjónvarp – dagblöð fyrirlestrar og heimsóknir
-
Dagurinn sjálfur, laugardagur opinn Rótarýfundur. Almenningi boðið. Spurning um Bíósalurinn í Duus húsi. Færa fundinn frá fimmtudegi til laugardags? Ræða við stjórn klúbbsins.
-
Gestur á slíkum fundi? Hugmynd hefur komið upp um að fá Forsetann á fundinn.
-
Hvað er það sem við viljum vekja athygli á? Framlög í Rótarýsjóðinn tilgreind. Sagt frá þeim í greinum og töluðu máli.
-
Annað.
-
a. Athuga með nýjan Rótarýfána. Ræða við stjórnina.
b. Forseti skorar á alla að mæta með Paul Harris orðu
c. Dagskrá, forseti Rkl. Setur fundinn, gestur flytur ræðu/ávarp, tónlist,
létt ávarp utanaðkomandi
Greinar verði tilbúnar í febrúar n.k.
Það er létt verk að skrifa grein í blöð um Rótarýsjóðinn. Viðtöl við fjölmiðla. Viljum við bjóða ákveðnum hópi/hópum á fund með okkur?