2018 11 08 - Fundargerð.doc
Fundur er settur í Rótarýklúbbi Keflavíkur. Þetta er 14. fundur starfsársins og nr. 3436 frá stofnun.
Forseti biður félaga og gesti að rísa úr sæti og skála fyrir ættjörðinni í vatni.
Fjórprófið
· Er það satt og rétt?
· Er það drengilegt?
· Eykur það velvild og vinarhug?
· Er það öllum til góðs?
Kynna gesti og bjóða velkomna á hefðbundinn hátt!
Sr Erla Guðmundsdóttir sóknarpresur í Keflavíkurprestakalli
____________________________________________________________________________
Boðuð forföll:
Einar Magnússon, Erlingur Leifsson, Guðmundur Björnsson verkfræðingur, Jón B. Guðnason og Georg V. Hannah.
_____________________________________________________________________________
Mætingar á öðrum fundum:
Ómar Steindórsson tilkynnti um fjórar mætingar í Flórída, í eitt skiptið var þó ekki fundur.
Erlingur Leifsson mætti í Rótarýklúbbnum Straumi í morgun.
_____________________________________________________________________________
Forseti færði klúbbnum kveðjur Ásbjörns Jónssonar fyrrverandi félaga.
Forseti fer yfir bréf alþjóðaforseta um Polyo Plus verkefnið og að 27. nóv. verði helgaður því.
Forseti upplýsti að pantaðir hefðu verið borðfánar.
Rætt er um að fara hópferð á Rótarýtónleikana 6. janúar og að ætlunin sé að safna tilkynningum um mætingu á næsta fundi.
Minnt er á fyrirhugað jólahlaðborð í Stykkishólmi 24. nóv. og að félagar þurfi að taka sig saman um ferðir og aðra dagskrá í ferðinni.
Forseti les bréf frá Styrmi Pálssyni 15 ára Njarðvíkingi sem óskar aðstoðar Rótarý við að komast í skiptinám til Bandaríkjanna. Fram kemur að stjórn hefur haft samband við æskulíðsnefnd umdæmisins/Hönnu Maríu og svarað Styrmi að málið verði kannað.
Hannes Friðriksson flytur 3. mínútna erindi.
Ómar Steindórsson afhendir fána frá Rotary Club of Orlando og Rotary Club of Winter Park í Florida.
Í boði Klúbbþjónustunefndar er Ólafur Helgi Kjartansson ræðumaður kvöldsins og segir frá veru sinni í Rótarý í 40 ár.
Ritari gerir grein fyrir afmælum til 15. nóvember 2018:
Afmæli félaga: Erlingur Leifsson, 14.11.56 og Jón Björn Sigtryggson 15.11.54.
Starfsaldursafmæli: Engin.
Makavaktin: Ingibjörg Bjarnadóttir maki Einars Magnússonar 8.11.41, Guðlaug Jóhannsdóttir maki Ómars Steindórssonar 15.11.44 og Hjálmar Árnason maki Valgerðar Guðmundsdóttur 15.11.50.
Fundarefni næsta fundar: Már Másson, framkvæmdastjóri viðskipta- og rekstrarsviðs hjá Bláa Lóninu segir frá mannauðs- og gæðamálum fyrirtækisins.
Fram kemur að þann 29. nóvember verði klúbbþing.
Konráð Lúðvíksson og Valgerður Guðmundsdóttir boða forföll næsta fund og Friðfinnur Skaftason næstu tvo fundi.
Fleira ekki gert og fundi slitið